Það var eftirminnilegt augnablik að hringja bjöllunni við opnun Nasdaq Stokkhólms þegar viðskipti með hlutabréf Alvotech hófust á sænska markaðnum. Alvotech er nú skráð á þremur mörkuðum, í New York, á Íslandi og í Stokkhólmi og við höfum fengið yfir 3.000 nýja hluthafa frá Svíþjóð sem eru frábær viðbót við okkar alþjóðlega hluthafahóp.
Við viljum þakka Adam Kostyál, forseta Nasdaq Stokkhólms og yfirmanni skráninga í Evrópu, og Magnúsi Harðarsyni, forseta Nasdaq Íslands, sem tóku þátt í viðburðinum, starfsfólki Nasdaq Stokkhólms og auðvitað starfsmönnum og vinum Alvotech sem komu til að fagna. Það var ánægjulegt að sjá marga af nýjum liðsmönnum Alvotech í Svíþjóð á þessum skemmtilega viðburði.
Alvotech hefur komið sér vel fyrir í líflegum líftækni- og lífvísindageiranum í Svíþjóð og á hlutabréfamarkaðnum í Stokkhólmi. Saman munum við halda áfram mikilvægu verkefni Alvotech að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hágæða líftæknilyfjum. Við viljum þakka samstarfsaðilum okkar, starfsmönnum og nýjum hluthöfum fyrir að gera þetta mögulegt. Saman stefnum við að því að verða leiðandi fyrirtæki í líftæknilyfjum með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif og láta gott af okkur leiða.