Róbert Wessman verður forstjóri Alvotech

Róbert Wessman verður áfram stjórnarformaður

Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefur tilkynnt breytingar á yfirstjórn fyrirtækisins. Mark Levick, sem hefur verið forstjóri baðst lausnar og Róbert Wessman, starfandi stjórnaformaður og stofnandi tekur við stöðu forstjóra. Hafrún Friðriksdóttir, sem áður var framkvæmdastjóri alþjóðlegra rannsókna og þróunar fyrir Teva, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar. Breytingarnar taka gildi 1. janúar n.k.

„Við höldum áfram að laga Alvotech að örum vexti, þar sem við höfum færst af stigi þróunar, rannsókna og fjárfestingar í aðstöðu, yfir í lyfjaframleiðslu og erum að auka framleiðslugetu til að geta þjónað mörgum alþjóðlegum mörkuðum samhliða“, segir Róbert Wessman. Hann segir það sérstaka ánægju að bjóða Hafrúnu velkomna í Alvotech teymið. „Hún hefur getið sér gott orð í lyfjaiðnaðinum fyrir einstaka forystuhæfileika. Ég vil einnig þakka Mark fyrir framlag hans til Alvotech á þessu vaxtarskeiði og ánægður að við fáum að njóta áfram þekkingar hans, þar sem hann hefur samþykkt að leiða vísindaráð félagsins.“

Róbert Wessman mun gegna stöðu forstjóra Alvotech, samhliða núverandi stjórnarformannshlutverki. Róbert stofnaði Alvotech árið 2013 og hefur verið stjórnarformaður frá árinu 2019. Róbert var forstjóri Actavis, sem undir hans stjórn varð að einu stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. Að því búnu stofnaði hann Alvogen og undir hans forystu sem stjórnarformaður og forstjóri óx það úr því að vera verktaki í framleiðslu í eitt af stærstu alþjóðlegu samheitalyfjafyrirtækjunum. Róbert er jafnframt einn af stofnendum og stjórnaformaður Aztiq Group. Hann er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Hafrún Friðriksdóttir hefur verið öflugur talsmaður fjölbreytni og jafnréttis í lyfjaiðnaðinum

Hafrún Friðriksdóttir var ábyrg fyrir öllum rannsóknum og þróunarverkefnum alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Teva (Executive Vice President and Head of Global R&D) frá árinu 2017 þar til fyrr á þessu ári. Hún var einnig framkvæmdastjóri alþjóðlegra rannsókna og þróunar há Allergan, áður Actavis, þar til fyrirtækið sameinaðist Teva árið 2016. Hjá Teva stjórnaði Hafrún allri lyfjaþróun fyrirtækisins, á sviði frumlyfja, samheitalyfja og líftæknilyfjahliðstæða. Hún bar þannig ábyrgð á þróun um 1.000 samheitalyfja á hverjum tíma, auk tuga frumlyfja og líftæknilyfjahliðstæða. Undir Hafrúnu heyrðu um 3.500 starfsmenn alþjóðlega í rannsóknum, þróun, lyfjagát, auk samskipta við heilbrigðisstarfsfólk og eftirlitsstofnanir. Hafrún er með doktorspróf í eðlislyfjafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur verið öflugur talsmaður fjölbreytni og jafnréttis í lyfjaiðnaðinum og hlaut fyrr á þessu ári viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir að hafa verið konum sérstök hvatning og fyrirmynd.